Umfangsmikið flutningsverkefni
Verkefnið var umfangsmikið og kallaði á vandaðan undirbúning, vegbætur á völdum stöðum og náið samstarf fjölmargra aðila. Meðal þess sem flutt var voru turnhlutar, vélarhús, rafalar og tæplega 69 metra langir vindmylluspaðar. Einnig var safnstöðvarspennir Vaðölduvers fluttur frá Þorlákshöfn að framkvæmdasvæðinu eftir sömu flutningsleið.
ET þungaflutningar og Bergen Spesial Transport önnuðust flutningana fyrir Enercon, framleiðanda vindmyllanna. Samstarf þeirra við lögreglu, Vegagerðina, sveitarfélög á áhrifasvæði flutningsleiðarinnar, Landsvirkjun og aðra sem komu að verkefninu gekk vel.
Landsvirkjun þakkar öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd flutninganna fyrir gott samstarf. Íbúar og aðrir vegfarendur fá sérstakar þakkir fyrir tillitssemi og þolinmæði á meðan flutningunum stóð.








