Stuðla að tækifærum og atvinnustarfsemi til framtíðar
Óhætt er að segja að orkutengd nýsköpunarverkefni Landsvirkjunar hafi verið vítamínsprauta fyrir atvinnulíf á landsbyggðinni, en á síðustu fimm árum hafa verkefni sem tengjast Eimi á Norðurlandi, Orkídeu á Suðurlandi og Bláma á Vestfjörðum hlotið styrki upp á ríflega 1,7 milljarða króna.
Þá er starfsfólk verkefnanna 16 talsins, í mörgum tilfellum sérfræðimenntað fólk sem flutt hefur aftur í heimabyggð eftir að hafa fengið starf við sitt hæfi.
Alls hafa bakhjarlar verkefnanna lagt til um 680 milljónir króna, en aðrir styrkir nema rúmlega einum milljarði. Þeir eru af ýmsu tagi, en þeir stærstu eru Horizon- og Life-styrkir frá Evrópusambandinu og styrkir frá innlendum sjóðum á borð við Orkusjóð, Lóu og Matvælasjóð.
Samstarfsverkefnin eiga það sameiginlegt að stuðla að orkutengdri nýsköpun og orkuskiptum með því að byggja á styrkleikum, auðlindastraumum og áhuga hvers svæðis fyrir sig. Fyrrnefndir styrkir segja því ekki alla söguna, því þau stuðla að tækifærum og atvinnustarfsemi til framtíðar, ef vel tekst til.
460 milljónir á Norðurland
Eimur, samstarfsverkefni Landsvirkjunar á Norðurlandi, hefur það markmið að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi með sjálfbærni, nýsköpun og verðmætasköpun að leiðarljósi. Bakhjarlar þess eru, auk Landsvirkjunar; umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Norðurorka og Orkuveita Húsavíkur. Alls hafa komið 460 milljóna króna styrkir til verkefnisins síðan 2020.
770 milljónir til verkefna á Suðurlandi
Orkídea er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi á vegum Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Tilgangur Orkídeu er að stuðla að þróun orkutengdrar matvælaframleiðslu og hringrásarhagkerfis á Suðurlandi. Styrkir til Orkídeu síðustu fjögur ár nema 770 milljónum króna.
Tæpur hálfur milljarður á Vestfirði
Blámi er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Vestfjarðastofu. Meginmarkmið Bláma er að styðja við og efla nýsköpun og þróun orkuskiptaverkefna með því að auka hlut vistvæns eldsneytis, vetnis og rafeldsneytis í samgöngum og iðnaði. Alls nema styrkir til verkefna Bláma 480 milljónum króna á fyrrnefndu tímabili.
Þá ber að nefna fjórða samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Eygló á Austurlandi, sem hóf starfsemi í byrjun árs. Meginmarkmið Eyglóar er að efla nýsköpun og þróun, með áherslu á að bæta nýtni hliðarstrauma og flétta þá inn í nýja verðmætasköpun. Bakhjarlar eru Landsvirkjun, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Austurbrú og sveitarfélög á Austurlandi; Múlaþing, Fjarðabyggð, Fljótdalshreppur og Vopnafjarðarhreppur.