Bilun í spenni í Búrfelli
Bilun varð í spenni 3 í Búrfelli sunnudaginn 5. júlí. Unnið er að greiningu bilunarinnar, en vonast er til að spennirinn verði kominn aftur í rekstur innan viku.
Vegna bilunarinnar dregur tímabundið úr vinnslugetu Landsvirkjunar sem nemur 90 MW.





