Stjórn óbreytt
Stjórn fyrirtækisins er óbreytt. Formaður hennar er Brynja Baldursdóttir og aðrir stjórnarmenn eru Berglind Ásgeirsdóttir, Hörður Þórhallsson, Sigurður Magnús Garðarsson, og Þórdís Ingadóttir.
Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru Elva Rakel Jónsdóttir, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Pétur Már Halldórsson, Styrkár Jafet Hendriksson og Stefanía Nindel.
Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og reikning fyrir liðið reikningsár, auk þess að samþykkja tillögu stjórnar um arðgreiðslu til eigenda. Arðgreiðslur Landsvirkjunar eru ákveðnar á grundvelli arðgreiðslustefnu fyrirtækisins.
Deloitte ehf. var kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar. Auður Þórisdóttir endurskoðandi, var kjörin utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd fyrirtækisins.





