Réttarframkvæmd staðfest og fest í sessi
Með umræddum gerðardómi er staðfest og fest í sessi sú réttarframkvæmd um ákvörðun endurgjalds fyrir vatnsréttindi sem þróast hefur á Íslandi allt frá fyrstu virkjunum sem reistar voru i byrjun síðustu aldar. Í dómi gerðardómsins er meðal annars vísað til dóms Hæstaréttar vegna Kárahnjúkavirkjunar og niðurstöðu matsnefndar vegna Blönduvirkjunar.
Við ákvörðun endurgjalds vegna vatnsréttinda þeirra virkjana sem fyrirhugaðar eru neðst í Þjórsá, Holtavirkjunar og Urriðafossvirkjunar, komst gerðardómurinn að þeirri niðurstöðu að fjárhæð vegna þeirrar fyrrnefndu eigi að nema 0,95% af stofnkostnaði hennar og að vegna Urriðafossvirkjunar beri Landsvirkjun að greiða 1,15% af stofnkostnaði hennar. Í báðum tilvikum er endurgjald reiknað til til 65 ára, rétt eins og í tilviki Hvammsvirkjunar. Mat á umhverfisáhrifum Holtavirkjunar og Urriðafossvirkjunar fór fram 2002-2004.





