Stuðningur við græna orkuvinnslu
Upprunaábyrgð raforku er staðfesting á því að raforkan hafi verið unnin með endurnýjanlegum orkugjöfum. Það er allt og sumt og óþarfi að flækja umræðuna. Þetta felst í heitinu, þarna er á ferðinni vottorð sem ábyrgist uppruna raforkunnar og ekkert annað.
Íslenskir framleiðendur raforku, þar á meðal Landsvirkjun, taka þátt í hinu evrópska kerfi upprunaábyrgða. Þrjátíu ríki eiga aðild að kerfinu sem byggir á því að allir sem nota raforku, hvar svo sem þeir eru staddir innan Evrópu, geti stutt við vinnslu endurnýjanlegrar orku með því að kaupa upprunaábyrgðir. Enginn er skyldaður til þess, hver og einn ræður hvort hann kaupir, hversu mikið og hvenær.
Tökum dæmi:
Fyrirtæki á Spáni á þess ekki kost að kaupa raforku sem unnin er með endurnýjanlegum orkugjöfum. Hún er einfaldlega ekki í boði á starfssvæði fyrirtækisins. Forsvarsmenn þess vilja hins vegar styðja baráttuna gegn loftslagsvánni og ákveða því að kaupa upprunaábyrgð frá raforkuframleiðanda sem stundar græna orkuvinnslu. Til dæmis framleiðanda í Noregi. Eða frá Landsvirkjun á Íslandi.
Þannig nær fyrirtækið að styðja við græna orkuvinnslu og sá stuðningur hvetur aðra orkuframleiðendur til að vinna sína orku með grænum hætti, enda sjá þeir fram á að fá hærra verð fyrir framleiðslu sína, verði hún græn.