Ál- og kísilmarkaðir í hringiðu heimsmála
Við Íslendingar höfum borið gæfu til þess að fá hingað til lands stöndug og vel rekin fyrirtæki í orkusæknum iðnaði. Þessi fyrirtæki, sem eru stórnotendur rafmagns frá Landsvirkjun, þurfa um þessar mundir að glíma við sífellt flóknara viðskiptaumhverfi og æ harðari samkeppni í breyttum heimi. Það er ákveðið áhyggjuefni í ljósi þess að velsæld íslensku þjóðarinnar helst að miklu leyti í hendur við velgengni þessara mikilvægu burðarstoða atvinnulífsins.
Til viðbótar við hefðbundna stórnotendur hefur ný kynslóð viðskiptavina rutt sér til rúms hér á landi, t.a.m. gagnaver og landeldisfyrirtæki. Þessi aukna fjölbreytni, sem byggist upp víða um land, er í takti við áherslur stjórnvalda á öflugan vöxt útflutningstekna og háframleiðnistörf. Í ljósi nýlegra atburða hefur mikilvægi stórnotenda fyrir íslenskt hagkerfi og samfélag sýnt sig með skýrum hætti.
Rótgrónir stórnotendur á Íslandi hafa unnið að því að þróa vöruframboð sitt yfir í virðisaukandi vörur, eins og sést á nýjum steypuskála Norðuráls. Vörur úr ál- og kísilafurðum eru grundvallarhráefni fyrir breytta heimsmynd. Þessir málmar gegna lykilhlutverki í orkuskiptum, enda eru þeir nauðsynlegir í orkuinnviði á borð við sólarsellur, vindtúrbínur, raflínur og rafhlöður. Jafnframt eru þeir lykilmálmar í varnar- og öryggismálum. Það er ekki tilviljun að Evrópusambandið hefur skilgreint ál og kísilmálma sem þjóðhagslega mikilvæga málma. Við erum stolt af þessum iðnaði, sem stendur keikur hér á landi þrátt fyrir tímabundin áföll á mörkuðum.





