Alvöru tækifæri í gervigreind
Undanfarið hefur gefið á bátinn hjá útflutningsgreinum á Íslandi. Má þar helst nefna alvarlega bilun hjá Norðuráli á Grundartanga, rekstrarstöðvun PCC á Bakka, áskoranir hjá Alvotech, gjaldþrot Play og núna síðast ákvörðun Evrópusambandsins um að setja tolla á kísiljárn.
Í ljósi þess er enn þá mikilvægara að huga vel að þeim vaxtarmöguleikum sem eru í þróun gervigreindar á Íslandi. Sundar Pichai forstjóri Google lítur svo á að gervigreind muni hafa meiri áhrif á þróun mannkynsins en eldur eða rafmagn. Stjarnfræðilegar fjárfestingar stærstu fyrirtækja í heimi í þróun gervigreindar styðja við þetta. Endurnýjanleg orka, kalt loftslag, traust flutningskerfi og mannauður valda því að Ísland er í kjörstöðu til að byggja upp þessa atvinnugrein.






