Ístak og DSD Noell stækka Sigöldu
Landsvirkjun hefur gengið frá samningum við tvo verktaka vegna stækkunar Sigöldustöðvar, að undangengnu útboðsferli. Annars vegar Ístak vegna byggingar helstu mannvirkja vegna stækkunarinnar og hins vegar þýska fyrirtækið DSD Noell GmbH vegna rista, loka og fallpípu. Samningurinn við Ístak kveður á um tæplega 7,5 milljarða kr. greiðslu fyrir verkið og samningurinn við DSD Noell tæpa 2 milljarða, eða samtals um 9,5 milljarða kr. Upphæðir eru án virðisaukaskatts.






