Borealis eykur raforkukaup á Blönduósi

23.06.2026Viðskipti

Landsvirkjun og Borealis​ Data Center​ hafa samið um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi.

Frá vinstri er Landsvirkjunarfólkið Ingvar Christiansen, lögmaður, Halldór Kári Sigurðarson, viðskiptastjóri, Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir, forstöðumaður viðskiptagreiningar, Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar og Hörður Arnarson, forstjóri. Þá Borealis-fólkið Björn Brynjúlfsson, forstjóri, Elfa Björg Aradóttir, fjármálastjóri og Soffía Halldórsdóttir, innkaupastjóri. Yst til hægri er Valur Ægisson, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Landsvirkjun.
Frá vinstri er Landsvirkjunarfólkið Ingvar Christiansen, lögmaður, Halldór Kári Sigurðarson, viðskiptastjóri, Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir, forstöðumaður viðskiptagreiningar, Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar og Hörður Arnarson, forstjóri. Þá Borealis-fólkið Björn Brynjúlfsson, forstjóri, Elfa Björg Aradóttir, fjármálastjóri og Soffía Halldórsdóttir, innkaupastjóri. Yst til hægri er Valur Ægisson, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Landsvirkjun.

Borealis eykur raforkukaup á Blönduósi

Landsvirkjun og Borealis​ Data Center​ hafa samið um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi. Um er að ræða langtímasamning um kaup á 12 MW forgangsorku til viðbótar við núgildandi samning.

Borealis hefur verið viðskiptavinur Landsvirkjunar frá því að starfsemi þess hófst hér á landi árið 2018. Auk gagnaversins á Blönduósi rekur Borealis einnig gagnaver í Reykjavík, í Reykjanesbæ og í Finnlandi.

Þróun gervigreindar eykur eftirspurn

Megináhersla​ gagnavera ​á Íslandi ​​er ​​á ​​gervigreind og þjónustu við viðskiptavini sem þurfa gagnageymslu og mikla reiknigetu. Þessi þróun á sér stað á heimsvísu og Evrópusambandið hefur til að mynda sett sér það markmið að þrefalda afkastagetu gagnavera í álfunni á næstu fimm til sjö árum.

Undanfarin misseri hafa ​alþjóðleg tæknifyrirtæki​ í auknum mæli leitað til Norðurlandanna til að reisa ​​​​gagnaver en aðgengi að endurnýjanlegri orku og kalt loftslag gera þau að álitlegum kosti. Í nýbirtri atvinnustefnu Íslands er horft til þess að vöxtur gagnavera sé tækifæri til þess að auka framleiðni og verðmætasköpun í hagkerfinu. Í atvinnustefnunni er lögð áhersla á háframleiðni​-​iðnað og fjölbreyttan útflutning með lágt kolefnisspor sem skapi ​fjölbreytt störf um allt land.

Uppbygging gagnavers Borealis á Blönduósi samræmist þessari framtíðarsýn en þar ​er m.a. verið að þjónusta nýj​​ustu​​​ kynslóð af ​vökvakældum N​VIDIA​​-búnaði​ til að veita gervigreindarþjónustu. Samhliða ​fjölgun ​gagnaver​sbygginga er Borealis​ einnig​ að ​bæta við aðstöðu fyrir starfsfólk og viðskiptavin​​i​​​​ sem munu starfrækja þar eigin starfsstöðvar. Þá er mikilvægt að raforkunotkun sé dreifð um landið líkt og framleiðsla hennar og með þetta í huga er Blönduós góður afhendingarstaður til framtíðar.

Uppbygging gagnavera um allt land hefur leitt til aukinnar raforkunotkunar en þau nota nú rúmlega 70 MW eða um 3,5% af heildarorkunotkun hér á landi.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Umbreytingin í rekstri gagnavera undanfarin misseri er í takt við stefnu Landsvirkjunar um að styðja við stafræna vegferð samfélagsins. Öflugur gagnaversiðnaður er mikilvægur fyrir samkeppnishæfni Íslands og það mikilvægi verður æ ljósara eftir því sem gervigreind sækir í sig veðrið. Landsvirkjun fagnar nýjum samningi við Borealis, hann er hluti af uppbyggingu þessa mikilvæga iðnaðar.“

Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis:

„Eftirspurn eftir innviðum fyrir gervigreind og afkastamikla reiknigetu vex hratt og við erum farin að sjá hvernig þessi tækni er að breyta heiminum. Ísland hefur tækifæri til að verða öflugur þátttakandi í aðfangakeðju gervigreindar með uppbyggingu innviða og þjónustuframboðs sem styður við þessar tækniframfarir. Þessi samningur við Landsvirkjun gerir okkur kleift að halda áfram uppbyggingu á Blönduósi, fjölga störfum og auka fjölbreytni í íslenskum útflutningi.“