Breyta útblæstri í grænt metanól til orkuskipta á sjó

23.03.2022Orka

Landsvirkjun og þýska fjárfestingafélagið PCC SE munu rannsaka möguleika þess að fanga og nýta útblástur frá kísilmálmsverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík til framleiðslu á grænu metanóli. Grænt metanól og annað rafeldsneyti munu koma í stað jarðefnaeldsneytis í skipum.

Mildar loftslagsáhrif frá iðnaði

Fjöldi fjárfesta og fyrirtækja veðjar nú á að grænt metanól geti spilað lykilhlutverk í orkuskiptum skipaflotans. Framleiðsla á grænu metanóli krefst endurnýjanlegra kolefnagjafa frá kísilverksmiðju PCC á Íslandi og endurnýjanlegrar orku frá aflstöðvum Landsvirkjunar. Ferlið við myndun metanóls kallar á inntak hreins koldíoxíðs og vetnis frá rafgreiningu vatns, þar sem eina aukaafurðin er súrefni og vatn.

Að umbreyta koldíoxíði úr úrgangi í verðmæta auðlind með því að nýta og framleiða eldsneyti fyrir iðnað mun hjálpa til við að draga úr loftslagsbreytingum og hraða umskiptum í hringrásarhagkerfi.

Kísilmálmar eins og framleiddur eru í verksmiðju PCC á Bakka eru t.d. nýttir í framleiðslu á sólarsellum og rafhlöðum í rafbíla. PCC SE stefnir að því að kísilverksmiðja fyrirtækisins á Húsavík verði kolefnishlutlaus með því að skipta út kolefnis-afoxunarefnum í framleiðslunni fyrir endurnýjanlega valkosti. Verksmiðjan á Bakka losar um 150 þúsund tonn af koldíoxíði árlega. Að fanga og nýta endurnýjanlega kolefnið sem losað er til að framleiða grænt metanól myndi gera verksmiðju PCC Bakka kolefnisneikvæða.

Peter Wenzel, aðstoðarforstjóri þróunarsviðs PCC SE:

„Við erum reiðubúin að taka næsta skref á Bakka, fanga kolefnið sem losnar við framleiðslu okkar og nýta það til orkuskipta. Við stefnum nú þegar að kolefnishlutleysi í rekstrinum en framleiðsla græns metanóls sem gæti nýst sem eldsneyti á skip væri merkur áfangi.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Við hjá Landsvirkjun fögnum þessu tækifæri til að vinna með góðum viðskiptavini að grænni lausn. Orkuskipti eru aðkallandi og ekki síst hjá skipaflotanum. Ef við náum að nýta endurnýjanlegu orkuna okkar til að vinna grænt metanól á Bakka eru við einu skrefi nær grænni framtíð.“