Hörður á Climate Week í New York

09.10.2025Fyrirtækið

Landsvirkjun var boðið að taka þátt í Climate Week í New York í september, enda eitt umhverfisvænasta orkufyrirtæki heims. Hörður forstjóri settist niður með blaðamanni Acumen til að ræða hvað aðrar þjóðir geta lært af Íslandi.

Fyrstu orkuskiptin mörkuðu upphafið

Horfðu á viðtalið hér

Það var okkur heiður að vera boðið að taka þátt í Loftslagsvikunni í New York í september. Hörður Arnarson forstjóri ræddi við Alison Kosik, blaðamann hjá Loftslagsvikunni (e. Climate Week) um vegferð Íslands í átt að endurnýjanlegri orku.

Spurning um nauðsyn

Vegferð Íslands í átt að endurnýjanlegri orku var sprottin af nauðsyn hjá fátækri þjóð. Vatnsaflið var beislað strax í lok 19 og byrjun 20 aldar. Á áttunda og níunda áratugnum tóku stjórnvöld svo þá sögulegu ákvörðun að hætta olíukyndingu og nota jarðvarma í staðinn. Þessar ákvarðanir umbreyttu efnahagslífinu, lækkuðu kostnað almennings, bættu loftgæði og tryggðu orkuöryggi þjóðarinnar.

„Hugrekki fyrri kynslóða hvetur okkur áfram í dag,“ segir Hörður. „Við lítum á aðgerðir í loftslagsmálum sem algjöra skyldu, þetta er ekki valkostur. Sérhver fjárfesting í orkumálum verður að þjóna komandi kynslóðum, rétt eins og fyrri ákvarðanir þjóna okkur í dag.“

Skyggnst bak við tjöldin
Skyggnst bak við tjöldin