Endurheimt varma lofandi en kostnaðarsöm
Landsvirkjun og Elkem hafa undanfarin misseri unnið að greiningu á endurheimt varma frá verksmiðju Elkem á Grundartanga, með það í huga að vinna úr honum rafmagn. Tæknilega er raunhæft að endurheimta um 150 GWst á ári, en verkefnið er svo umfangsmikið og kostnaðarsamt að það hefur verið lagt á hilluna að sinni.
Í nóvember 2023 var gefin út skýrsla í samstarfi Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Orkustofnunar og Landsvirkjunar undir heitinu Engin orkusóun. Í skýrslunni voru settar fram tillögur um hvernig bæta mætti nýtni í raforkukerfinu. Ein áhugaverðasta tillagan var endurheimt varma frá verksmiðju Elkem á Grundartanga, og að unnar væru úr honum 220 GWst af raforku á ári. Í kjölfar skýrslunnar hófu Elkem og Landsvirkjun samstarf um að greina fýsileika verkefnisins nánar.





