Ísland er eyja og orkukerfið okkar tengist ekki öðrum orkukerfum. Staðreyndin er samt sú að við seljum rafmagnið okkar á alþjóðlegum markaði. Viðskiptavinir okkar eru stór og öflug alþjóðleg fyrirtæki með starfsemi um allan heim.
Sum þessara fyrirtækja hafa mun sterkari efnahagsreikning en Landsvirkjun – eitt þeirra skilaði hagnaði sem nemur rúmlega 3 þúsund milljörðum íslenskra króna á dögunum. Rætur þess félags, Rio Tinto, liggja í raforkuframleiðslu og álframleiðslu í Kanada. Móðurfélag Norðuráls er stærsti álframleiðandinn í Bandaríkjunum. Alcoa og Elkem eru meðal stærstu framleiðenda málma í Noregi og með starfsemi víða um heim. Þá hafa gagnaver, sem öll eiga íslenskar rætur, byggt upp mikla starfsemi í nágrannalöndunum á síðastliðnum misserum.
Öll eiga þessi fyrirtæki það sammerkt að hafa valið Ísland og Landsvirkjun eftir ítarlega skoðun. Valið stóð á milli okkar og landa á borð við Noreg og Kanada. Þau völdu okkur og við völdum þau. Saga Landsvirkjunar og viðskiptavina hennar er samofin saga atvinnuþróunar, verðmætasköpunar og bættra lífskjara. Við höfum vaxið saman og styrkt samkeppnishæfni hvert annars.





