Fallið frá skerðingum á stórnotendur og fjarvarmaveitur

04.04.2022Orka

Landsvirkjun hefur fallið frá skerðingum á afhendingu raforku til stórnotenda og fjarvarmaveitna, í ljósi batnandi vatnsbúskapar síðustu daga. Fyrir helgi var fallið frá áformum um endurkaup raforku. Eftir stendur þó, að skerðingar til fiskimjölsverksmiðja munu vera óbreyttar enn um sinn.

Eins og ítrekað hefur komið fram hefur staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar verið með erfiðasta móti í vetur. Þurrkar sl. haust og sumar gerðu það að verkum að Þórisvatn fylltist ekki, en það er mikilvægasta miðlunarlónið á stærsta vinnslusvæði okkar. Í desember sl. var tilkynnt um skerðingu á afhendingu raforku til fiskimjölsverksmiðja og í janúar var tilkynnt um skerðingar til stórnotenda og fjarvarmaveitna.

Á skömmum tíma hefur staðan batnað svo um munar. Hinn 10. mars sl. var reiknað með að skerðingar stæðu út aprílmánuð, en úrkoma og hlýnandi veður síðari hluta mars kollvarpaði þeim illspám. Sú breytta staða leiddi til þess að hægt var að tilkynna að ekki kæmi til endurkaupa á raforku, sem er síðasta og dýrasta úrræði okkar til að verjast lágri stöðu miðlunarforðans. Nú er svo komið að hægt er að vinda ofan af skerðingum.

„Við erum ákaflega fegin því, fyrir okkar hönd og viðskiptavina okkar, að nú sjái fyrir endann á skerðingum hjá flestum. Við leggjum okkur alltaf fram um að mæta viðskiptavinum okkar af sanngirni og ég vil þakka þeim sérstaklega fyrir samstarfið og góðan skilning á erfiðri stöðu,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.