Fögnum úrbótum án afslátta
Ferli leyfisveitinga vegna nýrra virkjana er komið í óefni og full ástæða til að fagna því að nú skuli loks stigin markviss skref til úrbóta. Allt of flókið og tímafrekt ferli er engum til góða, það hefur þvert á móti neikvæð áhrif á framþróun og atvinnuuppbyggingu.
Við Íslendingar höfum í gegnum aldirnar nýtt náttúruna okkur til hagsbóta. Við njótum þeirra forréttinda að hafa nýtt okkur vatnsafl og jarðvarma til orkuvinnslu og erum því minna háð jarðefnaeldsneyti en flestar aðrar þjóðir. Við höfum unnið að uppbyggingu orkuinnviða í gegnum tíðina með virðingu fyrir náttúru landsins að leiðarljósi, vandað til verka þannig að eftir er tekið samhliða því að stuðla að öflugu atvinnulífi víða um land og þeim lífsgæðum sem við njótum hér á landi.
Í áranna rás hefur mótast regluverk sem skilgreinir hvaða kröfur eru gerðar til framkvæmda og atvinnustarfsemi, meðal annars til að vernda þau gæði sem felast í náttúru landsins og tryggja aðkomu almennings. Ferli leyfisveitinga vegna orkuvinnslu hefur hins vegar verið í ólestri, sem hefur leitt til þess að undirbúningur nýrra virkjana hefur tekið mun lengri tíma en eðlilegt ætti að teljast. Leyfisveitingaferli nýrra virkjana er grundvallarþáttur í uppbyggingu orkukerfisins. Ferlið á að tryggja vönduð vinnubrögð og gefa hagsmunaaðilum færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. En ferlið er orðið mjög flókið og svifaseint og til þess fallið að stuðla að óþarfa töfum.
Þrátt fyrir gagnrýni á flækjustigið legg ég áherslu á að skýrt og réttlátt ferli leyfisveitinga er mjög mikilvægt. Ég tel að hægt sé að ná fram sama árangri með minni fyrirhöfn og á styttri tíma. Í stað þess að fara í gegnum 10 til 12 skref til að fá leyfi fyrir nýrri virkjun væri hægt að fækka skrefunum verulega án þess að veita afslátt af efnislegri meðferð eða samráði. Þetta væri hagræðing fyrir framkvæmdaraðila, stjórnsýsluna og almenning.
Hægagangur í leyfisveitingum hefur víðtæk áhrif. Þetta hefur áhrif á framboð raforku, sem aftur getur haft áhrif á orkuskipti, atvinnuuppbyggingu og raforkuöryggi, sérstaklega þegar vatnsár eru erfið, og þar með lífskjör í landinu. Virkjanir eru ómissandi innviðir og brýnir almannahagsmunir að uppbygging þeirra virkjana sem samþykktar hafa verið gangi vel fyrir sig.





