Forgangsorkan verður ekki skert
Landsvirkjun hefur aldrei skert forgangsorku þau tæpu 60 ár sem orkufyrirtæki þjóðarinnar hefur starfað. Ekkert bendir heldur til að við skerðum afhendingu forgangsorku á komandi vetri. Við höfum ávallt gætt þess að lofa ekki meiri forgangsorku en við ráðum við að selja, jafnvel þegar vatnsár eru með erfiðasta móti. Það hefur hins vegar komið til skerðinga á afhendingu raforku á undanförnum árum en í þeim tilvikum hafa samningar við kaupendur kveðið á um að skerða mætti orkuna, þeir hafa keypt skerðanlega orku og greitt fyrir hana lægra verð en fyrir forgangsorku.
Forgangsorka er einfaldlega sú orka sem raforkuframleiðendur skuldbinda sig til þess að afhenda viðskiptavinum, óháð vatnsbúskap, viðhaldi eða öðrum fyrirsjáanlegum þáttum í rekstrinum.
Óhætt er að taka undir með þeim sem segja að þörf sé á meiri orkuvinnslu á Íslandi. Við hjá Landsvirkjun höfum ítrekað bent á þessa staðreynd og nú stefnir í að við getum loks hafist handa við Hvammsvirkjun og vindorkuverið Búrfellslund. Þegar ekki er næg orka verður stundum að skerða hana til þeirra sem hafa samið á þann veg. Og á sama tíma er ekki heldur hægt að tryggja sumum fyrirtækjum orku, sem gjarnan hefðu viljað kaupa meira en þau fá núna. Það er hins vegar ábyrgðarlaust að tala eins og stefni í skerðingar á forgangsorku.
Er þá alveg útilokað að komi til skerðingar á forgangsorku? Nei, það er ekki hægt að fullyrða það, því meiriháttar náttúruhamfarir gætu auðvitað leitt til þess að Landsvirkjun gæti ekki unnið orkuna. En það þarf slík óviðráðanleg, ytri atvik (force majeure) til að skerðingar á forgangsorku raungerist.