Framkvæmdir auka losun en aðeins tímabundið
Loftslagsbókhald Landsvirkjunar sýnir að losun vegna orkuvinnslu fyrirtækisins var 3,1 gramm koldíoxíðsígilda á hverja unna kílówattstund á árinu 2025. Losunin er með því lægsta sem þekkist innan orkugeirans. Meðaltal vegna orkuvinnslu á heimsvísu er í kringum 440 g/kWst og í Evrópu tæp 200 g/kWst. Meðallosun allrar orkuvinnslu á Íslandi er 7,7 g/kWst. Við hjá Landsvirkjun ætlum þó að gera enn betur og stefnum að því að losun vegna orkuvinnslu okkar verði undir 1 g/kWst árið 2050.
Í loftslagsbókhaldinu kemur jafnframt fram að óbein losun í virðiskeðju fyrirtækisins hækkaði um tæp 50% milli ára. Þá hækkun má rekja til losunar vegna framkvæmda en á árinu stóðu m.a. yfir framkvæmdir við Vaðölduver og undirbúningsframkvæmdir við Hvammsvirkjun. Sú losun er að mestu vegna framleiðslu byggingarefna sem í mannvirkin fer og eldsneytisnotkunar verktaka á framkvæmdatíma.
Nú er hafið stærsta framkvæmdatímabil í sögu orkufyrirtækis þjóðarinnar. Auk fyrrnefndra verkefna standa vonir til að framkvæmdir við stækkun Sigöldustöðvar og virkjun toppþrýstings á Þeistareykjum hefjist á komandi misserum. Viðbúið er því að losun vegna framkvæmda fyrirtækisins muni aukast enn frekar á komandi árum.





