Framkvæmdir ekki stöðvaðar

16.09.2025Hvammsvirkjun

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu um stöðvun framkvæmda við Hvammsvirkjun.

Virkjunarleyfi til bráðabirgða liggur fyrir

Úrskurðinn í heild má lesa á vef Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála

Krafan var lögð fram af náttúruverndarsamtökum sem kærðu þá ákvörðun Rangárþings ytra að veita Landsvirkjun framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdum við Hvammsvirkjun. Kærendur vilja að sú ákvörðun verði felld úr gildi og mun úrskurðarnefndin taka efnislega afstöðu til þeirrar kröfu í komandi úrskurði. Að þessu sinni laut málið eingöngu að kröfunni um stöðvun framkvæmda.

Í úrskurði nefndarinnar er bent á að framkvæmdir samkvæmt hinu kærða framkvæmdaleyfi standi nú yfir og áætlað að þeim ljúki í janúar á næsta ári. Fyrir þann tíma megi vænta niðurstöðu um þá kröfu kærendanna að framkvæmdaleyfið skuli fellt úr gildi.

Nefndin bendir á að nú liggi fyrir virkjunarleyfi til bráðabirgða frá Umhverfis- og orkustofnun. Ekki verði framhjá því litið að framkvæmdasvæðinu hafi þegar verið raskað, verulegt fjárhagslegt tjón gæti hlotist af stöðvun framkvæmda og framkvæmdirnar virðist í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Því séu ekki skilyrði til að stöðva framkvæmdirnar.