Hrunvarnagirðing endurnýjuð
Landsvirkjun mun í sumar standa fyrir framkvæmdum í Fremri Kárahnjúk og munu þær hefjast föstudaginn 23. júní nk. og áætluð verklok eru föstudaginn 25. ágúst nk.
Verkið felur í sér að endurnýja hrunvarnagirðingu sem stendur ofan við veginn í Fremri Kárahnjúk.
Á verktímanum mun verða nauðsynlegt að loka veginum vegna hættu á grjóthruni og einnig vegna þess að stór krani mun þurfa að standa á veginum. Meginþungi nauðsynlegra lokana verður í fyrstu og síðustu viku framkvæmdanna en að auki mun verða nauðsynlegt að loka eitthvað á öðrum tímum framkvæmdarinnar. Veginum verður lokað annars vegar við inntakið á milli Desjarárstíflu og Kárahnjúkastíflu og hins vegar við norðurenda Kárahnjúkastíflu, ekki er hjáleið á leiðinni á þessum tíma.





