Fyrsta undirstaðan steypt í Vaðölduveri

18.09.2025Vaðölduver

Í gær var stigið mikilvægt skref í uppbyggingu Vaðölduvers þegar ÍSTAK steypti fyrstu undirstöðu af alls 28 sem reistar verða á svæðinu. Þetta markar næsta skref framkvæmda við grunninn að vindmyllunum sem munu framleiða græna orku til framtíðar.

Öll steypa framleidd á staðnum

Ákveðið var að byrja á að steypa undirstöðu fyrir vindmyllu númer 13. Þrátt fyrir númerið gekk steypan afar vel og tók um 14 klukkustundir að ljúka verkinu. Í undirstöðuna fóru um 70 tonn af stáli og rúmlega 400 rúmmetrar af steypu. Öll steypa í undirstöðurnar er framleidd á staðnum og eftirlit með framkvæmdunum annast COWI. Stefnt er að því að fyrstu 14 vindmyllurnar verði reistar og komnar í rekstur fyrir haustið 2026. Reiknað er með að Vaðölduver verði komið í fullan rekstur fyrir lok árs 2027.

Græn orka til framtíðar

Elín Hallgrímsdóttir, staðarverkfræðingur Vaðölduvers hjá Landsvirkjun, segir þetta vera stóran áfanga: „Þetta er stór og mikilvægur áfangi í uppbyggingu Vaðölduvers. Fyrsta undirstaðan markar upphafið að því að sjá vindmyllurnar rísa og framleiða græna orku til framtíðar. Ég vil hrósa ÍSTAK og öllu teyminu á verkstað fyrir faglegt og vandað starf – þetta gekk afar vel og er góð byrjun á þessum hluta verkefnisins.“

Um 70 tonn af stáli fara í hverja undirstöðu