Gagnaver í leit að orku
Við lifum á tímum örra tæknibreytinga, þar sem gervigreind er orðin lykilþáttur í þróun samfélags og atvinnulífs um allan heim. Fyrirtæki og þjóðir keppast við að þjálfa líkön, bæta reiknigetu og skapa sér forskot í kapphlaupinu um nýtingu gervigreindar.
Bandaríkin, Kína og Evrópusambandið hafa þegar hafið víðtæka uppbyggingu og stefna að því að vera leiðandi á þessu sviði. Ísland stendur nú á tímamótum og við höfum tækifæri til að taka virkan þátt í gervigreindarbyltingunni á eigin forsendum, en aðeins ef við erum snör í snúningum.
Gervigreind hefur þegar breytt heiminum; hún hefur til dæmis bylt rannsóknum á áhrifum lyfja á líkamann, stuðlað að þróun nýrra aðferða við að lækna sjúkdóma, bætt veðurspár og loftslagsrannsóknir og aðstoðað við þróun nýrra námsaðferða. Hún stóreykur framleiðni í samfélaginu og opnar ný tækifæri til atvinnusköpunar.





