GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum
GeoSilica færir út kvíarnar og hefur starfsemi í nýju húsi á fjölnýtingarlóð Landsvirkjunar á Þeistareykjum komandi haust. Fyrirtækið hefur samið við Landsvirkjun um leigu á húsinu, afhendingu auðlindastrauma á Þeistareykjum og samstarf til næstu ára. Samningurinn var undirritaður í gær, 27. maí. Samstarfið markar upphaf fjölnýtingar á Þeistareykjum til framtíðar.
GeoSilica var stofnað af Fida Abu Libdeh árið 2012. Fyrirtækið framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi til daglegrar inntöku. GeoSilica vinnur steinefni úr jarðhitasvæðum Íslands og þróar 100% náttúrulegar og vegan-vottaðar gæðavörur. Kísill er eitt algengasta steinefni heims og finnst víðsvegar í náttúrunni. Hann gegnir mikilvægu hlutverki í mannslíkamanum og vörur GeoSilica auðvelda upptöku hans. Kísill úr jarðhitavökva frá Þeistareykjastöð verður nýttur til framleiðslunnar.
Hluti lóðar milli skiljustöðvar og aflstöðvar Landsvirkjunar verður svokölluð fjölnýtingarlóð. Þar reisir Landsvirkjun hús sem leigt verður til GeoSilica. GeoSilica fær auðlindastrauma beint frá jarðvarmavinnslu Þeistareykjastöðvar. Vonir standa til að starfsemi geti hafist næsta haust eða sumarið 2026.