Næstu skref í hagnýtingu örþörunga

12.06.2025Fyrirtækið, Nýsköpun

Landsvirkjun og MýSköpun hafa samið um að skoða staðsetningu á hugsanlegri framleiðslu örþörunga nálægt Þeistareykjastöð eða í Bjarnarflagi við Mývatn. Um leið verður skoðað hvort fýsilegt sé að tengja starfsemina beint við virkjun.

Samstarf fyrirtækjanna formgert

Landsvirkjun og MýSköpun hafa samið um að skoða staðsetningu á hugsanlegri framleiðslu örþörunga nálægt Þeistareykjastöð eða í Bjarnarflagi við Mývatn. Um leið verður skoðað hvort fýsilegt sé að tengja starfsemina beint við virkjun.

Líftæknifyrirtækið MýSköpun er núna til húsa á Kísiliðjulóðinni í Bjarnarflagi í Mývatnssveit. Fyrirtækið var stofnað af heimafólki og fyrirtækjum í héraði. MýSköpun hefur rannsakað, ræktað og einangrað ýmsa hagnýta örþörunga frá árinu 2013. Fyrirtækið sótti sér aukið fjármagn til hluthafa sinna í lok árs 2024 og vinnur nú að áætlun til framtíðarvaxtar. Stærstu hluthafar félagsins tóku flestir þátt í síðustu fjármögnun, þeirra á meðal Þingeyjarsveit, Nýsköpunarsjóðurinn Kría, Jarðböðin við Mývatn og KEA. Ætlunin er að taka næsta skref og auka verulega framleiðslu örþörunga með byggingu nýs framleiðsluhúsnæðis.

Með samningi Landsvirkjunar og MýSköpunar er samstarf fyrirtækjanna undanfarin ár í raun formgert. Tilgangurinn er að styðja við verðmætasköpun og fjölgun starfa á svæðinu með nýtingu á auðlindastraumum frá virkjunum Landsvirkjunar. Framlag Landsvirkjunar næstu mánuði felst aðallega í aðstoð, aðstöðu og ráðgjöf og munu aðilar skoða leiðir til að þróa áfram samstarfið.

Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður Nýsköpunar og viðskiptaþróunar, Valdimar Halldórsson, Kría Nýsköpunarsjóð, Dr.Ingólfur Bragi Gunnarsson, framkvæmdastjóri MýSköpunar, Ríkarður Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunar og viðskiptaþróunar og Bríet Ósk Magnúsdóttir, nýsköpunarsjóri hjá Landsvirkjun

Dr. Ingólfur Bragi Gunnarsson, framkvæmdastjóri MýSköpunar:

„Þetta samstarf við Landsvirkjun er stórt skref í átt að framtíðarsýn okkar um uppbyggingu umhverfisvænnar örþörungaræktunar á Norðausturlandi. Með uppbyggingu á slíkri örþörungaræktun með beintengingu raforku frá virkjun Landsvirkjunar getur orðið til ný atvinnugrein á okkar starfssvæði sem mun fjölga atvinnutækifærum og efla atvinnulífið. Framtíðaráætlanir okkar gera ráð fyrir mikilli uppbygginu og á næstu fimm árum gætu orðið til á bilinu 20 til 40 ný störf á svæðinu.”

Ríkarður Ríkarðsson,, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun:

„Við hjá Landsvirkjun tökum því fagnandi að eiga áfram aðkomu að spennandi starfsemi MýSköpunar á vinnslusvæði okkar við Mývatn. Fyrirtækin eiga það sameiginlegt að vilja vinna með nærsamfélagi sínu, vera góðir grannar og nýta auðlindir náttúrunnar með ábyrgum hætti til verðmætasköpunar, svo ég hef mikla trú á þessu samstarfi.“