Í fararbroddi í loftslagsmálum

20.04.2022Umhverfi

Landsvirkjun situr í 81. sæti á lista Financial Times yfir þau evrópsku fyrirtæki sem hafa lækkað losun á framleiðslueiningu hvað mest á árunum 2015-2020 en samdráttur okkar nam 20,5%. Alls eru 400 fyrirtæki á listanum yfir Europe Climate Leaders en Landsvirkjun er þar eina íslenska fyrirtækið.

Listinn tekur til beinnar losunar og losunar vegna orkunotkunar. Þá var einnig horft m.a. til losunar á hagnað, samdráttar í heildarlosun og einkunnar viðkomandi fyrirtækis hjá alþjóðlegu samtökunum CDP, en einkunn Landsvirkjunar þar er A- og telst fyrirtækið leiðandi í loftslagsmálum. Þá er rétt að taka fram að fyrirtæki sem valda umtalsverðum umhverfisskaða komast ekki á þennan lista Financial Times jafnvel þótt þau uppfylli kröfur um samdrátt í losun.

Losun með því lægsta sem þekkist

Losun í starfsemi Landsvirkjunar árið 2021 var 3,6 grömm af koldíoxíði á hverja framleidda kílówattstund og er með því lægsta sem þekkist, jafnvel þegar borið er saman við aðra endurnýjanlega orkuvinnslu.

Listi Financial Times er enn ein staðfestingin á góðum árangri Landsvirkjunar í loftslagsmálum. Við ætlum að gera enn betur, halda áfram að framleiða raforku með einstaklega lítið kolefnisspor og taka virkan þátt í baráttunni gegn hnattrænni hlýnun.

Listi Financial Times yfir Europe Climate Leaders