Innrennsli til miðlana og aflstöðva Landsvirkjunar í desember var áfram í lágmarki. Sú úrkoma sem féll, sérstaklega í síðari hluta mánaðarins, féll sem snjór og í byrjun janúar voru snjóalög á hálendinu í meðallagi miðað við árstíma.
Landsvirkjun hefur endurmetið horfur í vatnsbúskapnum í upphafi árs og niðurstaðan staðfestir þá ákvörðun sem tilkynnt var um 19. desember sl. að skerða afhendingu raforku til stórnotenda á suðvesturhluta landsins. Skerðingar hafa verið frá því í byrjun desember þegar afhending til fiskimjölsverksmiðja, fiskþurrkana og gagnavera var skert.
Núverandi áætlanir gera ráð fyrir að skerðingar á afhendingu orku geti staðið til loka apríl, en Landsvirkjun mun vakta vel allar breytingar í tíðarfari og stöðu miðlunarlóna og uppfæra áætlanir um skerðingar í samræmi við þær.





