Ísing felldi vindmælingamastur

06.02.2026Fyrirtækið, Umhverfi

Ísing felldi vindmælingamastur

Vindmælingamastur Landsvirkjunar við Reyðará, austan Húsavíkurfjalls, féll í janúar til jarðar undan þunga ísingar. Ísingin á 98 metra háu mastrinu og stagvírum þess var a.m.k. 3 tonn þegar það féll. Á næstu vikum verður ákveðið hvernig frekari mælingum verður háttað en hugsanlega nægir að setja upp lægra mastur sem tekur á sig minna ísingaálag.

Mastrið var reist í byrjun október í fyrra. Á því var búnaður til að mæla vindhraða og -stefnu í nokkrum hæðum ásamt hita- og rakanemum og loftvog. Markmið mælinganna var að kanna veðurfarslega þætti í tengslum við rannsóknir á vindorkunýtingu á svæðinu. Rannsóknarbúnaðurinn var alfarið knúinn endurnýjanlegum orkugjöfum; vindrafstöð og sólarsellum. Vindmælingarnar eru ekki einu rannsóknirnar sem hafa verið gerðar á svæðinu, en Náttúrustofa Norðausturlands hefur síðastliðin tvö sumur unnið umfangsmiklar rannsóknir á fuglalífi.

Þrjú tonn af ís

Mastrið féll til jarðar 16. janúar sl. en í aðdraganda fallsins gerði mikið ísingaveður á svæðinu þar sem hiti var rétt undir frostmarki og mikill raki i lofti. Mastrið sjálft vó um 1,5 tonn en ísingin sem hlóðst á það var a.m.k. 3 tonn. Með þessum mælingum fæst mikilvæg innsýn í veðurfar á svæðinu sem nýtist við val á mótvægisaðgerðum gegn ísingarvá sem er alþekkt á norðlægum slóðum.

Búið er að taka ónýtt mastrið saman og semja við björgunarsveitina Garðar á Húsavík að koma því í endurvinnslu. Farið verður aftur á svæðið þegar snjóa leysir til að fjarlægja brak sem kann að koma í ljós.

Mælingar Landsvirkjunar á svæðinu hafa nú staðið í tvö ár, þar af hefur þetta mastur staðið í tæpa fjóra mánuði, eins og áður segir. Líklegt er að nýtt og lægra mastur verði reist á staðnum til að ljúka svokölluðu vindauðlindamati.