Breytilegt og óútreiknanlegt raforkuverð flækir samningagerð og dregur úr hvata til að gera langtímasamninga. Ein helsta tillaga Mario Draghi, í skýrslu hans um samkeppnishæfni Evrópu, var að auka vægi langtímasamninga til að skapa fyrirsjáanleika. Þetta eru engin ný sannindi fyrir okkur hjá Landsvirkjun. Starfsemi okkar hefur byggt á stöðugum langtímasamningum undanfarna áratugi, sem hefur veitt fyrirsjáanleika í tekjuöflun og gert stórnotendum okkar kleift að sinna rekstri sínum af kostgæfni. Draghi lagði því til leið fyrir Evrópu sem við Íslendingar erum fyrir löngu búnir að sannreyna.
Þegar litið er til orkuþríþrautarinnar má segja að Ísland sé í heimsklassa. Við erum ein fárra þjóða sem hefur náð frábærum árangri í öllum þremur greinum: loftslagsmálum, samkeppnishæfni og öryggi. Þessi niðurstaða er ekki sjálfgefin, heldur byggir hún á skynsamlegum ákvörðunum sem teknar hafa verið með hagsmuni Íslands að leiðarljósi. Til að halda í þessa stöðu og tryggja áframhaldandi samkeppnishæfni verðum við að vera vakandi. Í harðri alþjóðlegri samkeppni verðum við að taka til hendinni og lagfæra nokkur mál sem því miður hafa þróast í öfuga átt:
- Hagkvæmir virkjunarkostir: Við verðum að leggja höfuðáherslu á að nýta þá hagkvæmu virkjanakosti sem standa til boða, án þess þó að slá af kröfum um t.d. umhverfisvernd. Óhagkvæmir kostir til viðbótar við langt og óskilvirkt leyfisveitingaferli gera það að verkum að Ísland stimplar sig einfaldlega út úr alþjóðlegri samkeppni.
- Flutningskostnaður: Við verðum að tryggja að flutningskostnaður (þ.e. kostnaður við flutning raforkunnar) standist alþjóðlega samkeppni. Hann hefur aukist verulega hérlendis á undanförnum árum og er mun hærri en í samanburðarlöndunum. Stórnotendur horfa til heildarkostnaðar og þar leikur flutningskostnaður lykilhlutverk.
Í einu og öllu þurfum við að tryggja að Ísland komi vel út í samanburði við önnur lönd þegar spennandi stórnotendur, eins og gagnaver með mikla greiðslugetu, leita að næstu staðsetningu. Ráðumst í aðgerðir sem byggja undir samkeppnishæfni Íslands og skapa verðmæti fyrir þjóðina alla. Með því móti tryggjum við Ísland áfram í sessi sem meistara orkuþríþrautarinnar.