Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði
Þótt Ísland sé eyja í norðri ferðast afurðir raforkunnar okkar um alla heimsbyggðina. Með íslenskri raforku eru búin til verðmæti sem finnast í bílum á götum Berlínar, í vindmyllum á Norðursjó, í sólarsellum á Spáni og í rafstáli í Japan. Hún er í laxinum í búðarborðum Whole Foods og drífur gervigreindarlausnir. Verðmætin sem hér verða til eru hluti af daglegu lífi fjölda fólks víða um heim.
Ástæðan er einföld: Viðskiptavinir Landsvirkjunar eru alþjóðlegir risar. Fjárhagslegur styrkur sumra þeirra jafnast á við heilu ríkin. Landsvirkjun er lítið fyrirtæki í alþjóðlegum samanburði, en við búum yfir eftirsóknarverðri auðlind. Saga Landsvirkjunar og viðskiptavina hennar er samofin saga atvinnuþróunar, verðmætasköpunar og bættra lífskjara. Við höfum vaxið saman og styrkt samkeppnishæfni hvert annars.





