Öflug þátttaka á heimsþingi jarðvarma

15.06.2026Orka, Fyrirtækið

Fulltrúar Landsvirkjunar tóku virkan þátt í heimsþingi jarðvarma, World Geothermal Congress, sem fram fór í Calgary í Kanada í byrjun júní.

Íslenska sendinefndin við Íslandsbásinn á vegum Green by Iceland.
Íslenska sendinefndin við Íslandsbásinn á vegum Green by Iceland.

Ísland mikilvæg þjóð í heimi jarðvarma

Fulltrúar fyrirtækisins tóku virkan þátt í heimsþingi jarðvarma, World Geothermal Congress, sem fram fór í Calgary í Kanada í byrjun júní. Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma, er sem kunnugt er forseti Alþjóða jarðvarmasamtakanna og var Ísland gestgjafi þingsins („co-host nation“) ásamt Kanada.

Deirdre Clark frá Iceland GeoSurvey, Helga Margrét Helgadóttir frá ÍSOR, Anette Kærgaard og Julia Lee Reimer frá Landsvirkjun
Deirdre Clark frá Iceland GeoSurvey, Helga Margrét Helgadóttir frá ÍSOR, Anette Kærgaard og Julia Lee Reimer frá Landsvirkjun
Íslandsbásinn var vinsæll
Íslandsbásinn var vinsæll
Alma Stefánsdóttir hjá Landsvirkjun og Viktoría Alfreðsdóttir hjá Green by Iceland bregða á leik
Alma Stefánsdóttir hjá Landsvirkjun og Viktoría Alfreðsdóttir hjá Green by Iceland bregða á leik
Hópurinn frá Landsvirkjun
Hópurinn frá Landsvirkjun

Our Climate Future

Íslandsstofa hélt utan um aðkomu Íslands og skipulagði m.a. viðburðinn Loftslagsframtíð okkar („Our Climate Future“), þar sem Bjarni sat í pallborði.

Bjarni Pálsson, Terra Rogers forstöðumaður Clean Air Task Force hjá Super-Hot Geothermal, Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunar og Randal Wichuk, forstjóri Teverra.
Bjarni Pálsson, Terra Rogers forstöðumaður Clean Air Task Force hjá Super-Hot Geothermal, Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunar og Randal Wichuk, forstjóri Teverra.

Fjölþjóðleg vinnustofa um skrásetningu gass

Hér má lesa nánar um vinnustofuna

Alma Stefánsdóttir og Jónas Ketilsson kynntu vísindagreinar um gasmeðhöndlun og tóku þátt í að stýra fjölþjóðlegri vinnustofu um gas í tengslum við jarðvarmavinnslu.

Deirdre Clark frá Iceland GeoSurvey, Alma Gytha Huntington-Williams hjá HS Orku og Alma Stefánsdóttir hjá Landsvirkjun
Deirdre Clark frá Iceland GeoSurvey, Alma Gytha Huntington-Williams hjá HS Orku og Alma Stefánsdóttir hjá Landsvirkjun
Anna Björg Guðjónsdóttir hjá BBA//Fjeldco og Jónas Ketilsson hjá Landsvirkjun
Anna Björg Guðjónsdóttir hjá BBA//Fjeldco og Jónas Ketilsson hjá Landsvirkjun
Líflegar umræður í borðavinnu
Líflegar umræður í borðavinnu

Vinnustofan var á vegum jarðhitahóps Alþjóðlegu orkumálastofnunarinnar (International Energy Agency - Geothermal), en markmið hennar var að móta stefnu til næstu ára, enda mikilvægt að losun gass frá vinnslu jarðhita sé vel skrásett og samræmd milli landa.

Niðurstöður vísindagreina kynntar

Sérfræðingar Landsvirkjunar héldu ýmis erindi, vinnustofur og kynntu vísindagreinar á ráðstefnunni, en alls voru fulltrúar fyrirtækisins 15 talsins.

Hilmar Már Einarsson og Sigurður Óli Guðmundsson kynntu toppvélina við Þeistareyki.

Hilmar Már Einarsson
Hilmar Már Einarsson
Sigurður Óli Guðmundsson
Sigurður Óli Guðmundsson

Anette K. Mortensen fjallaði um náttúruvá og jarðvarmanýtingu

Anette K. Mortensen
Anette K. Mortensen
Anette K. Mortensen
Anette K. Mortensen

Jónas Ketilsson kynnti fyrstu fjölþjóðlegu greinina sem tekur saman náttúrulega losun og losun frá vinnslu jarðhitaþjóða. Greinin er skrifuð með fjölmörgum samstarfsaðilum innan IEA Geothermal og fjallar einnig um regluverk og aðferðafræði losunarbókhalds og það ósamræmi sem er til staðar í málaflokkinum

Jónas Ketilsson
Jónas Ketilsson

Alma Stefánsdóttir kynnti grein um það hvernig hönnun vinnslurásar jarðvarmavirkjana hefur bein áhrif á tæknilegt flækjustig og möguleika til hagnýtingar og/eða endurniðurdælingar jarðhitagasa.

Alma Stefánsdóttir
Alma Stefánsdóttir

Julia Lee Reimer kynnti meðal annars hvernig nota mætti efnasamsetningu einstakra borhola til að meta tengsl milli sprunga við Þeistareyki.

Julia Lee Reimer
Julia Lee Reimer

Vel heppnuð kynning á Íslandsbás

Valur Knútsson og Kjartan Steinar Gíslason hjá nýframkvæmdum toppvélina á Þeistareykjum á bás Íslands og vakti kynningin mikla athygli.

Valur Knútsson hóf kynninguna
Valur Knútsson hóf kynninguna
Kjartan Steinar Gíslanson og Valur Knútsson kynna toppvélina
Kjartan Steinar Gíslanson og Valur Knútsson kynna toppvélina

WGC í Kenía 2029

Í lokaathöfninni afhenti Bjarni kyndilinn til Kenýa, þar sem næsta þing verður haldið eftir þrjú ár. Þingið þótti vel heppnað og var gerður góður rómur að framlagi Landsvirkjunar.

Bjarni Pálsson og Peter Njenga, forstjóri Kenya Electric (KenGen) Generating Company, stærsta raforkufyrirtæki Austur Afríku.
Bjarni Pálsson og Peter Njenga, forstjóri Kenya Electric (KenGen) Generating Company, stærsta raforkufyrirtæki Austur Afríku.