Landsvirkjun greiðir upp 50 milljón dollara skuldabréf

29.11.2022Fjármál

Landsvirkjun hefur greitt upp skuldabréf að fjárhæð 50 milljónir dollara (um 7,1 milljarður króna) sem eru á gjalddaga í febrúar 2026. Bréfin voru gefin út undir EMTN skuldabréfarammanum árið 2006 og eru með ISIN númerið XS0244993084.

Skuldabréfin eru með ríkisábyrgð og mun hlutfall lána Landsvirkjunar með ríkisábyrgð því lækka eftir viðskiptin og verða um 10% af heildarlánum Landsvirkjunar en eftirstandandi lán með ríkisábyrgð eru einnig frá árinu 2006. Endurkaup skuldabréfanna endurspegla sterka fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og eru liður í skuldastýringu fyrirtækisins.