Landsvirkjun greiðir upp 80 milljóna evra skuldabréf

09.12.2021Fjármál

Landsvirkjun hefur í dag greitt upp skuldabréf að fjárhæð 80 milljónir evra, um 11,8 milljarða kr., sem eru á gjalddaga í janúar 2024. Bréfin voru gefin út undir EMTN skuldabréfarammanum, eru skráð í kauphöllina í Lúxemborg og hafa ISIN númerin XS0183893550 og XS0184706595.

14% lána með ríkisábyrgð

Skuldabréfin eru með ríkisábyrgð og mun hlutfall lána Landsvirkjunar með ríkisábyrgð því lækka eftir viðskiptin og verður um 14% af lánum, en útistandandi lán með ríkisábyrgð eru frá árinu 2006. Endurkaup skuldabréfanna endurspegla sterka fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og eru liður í skuldastýringu fyrirtækisins.