Opið öllum
Áningarstaðurinn verður opinn gestum og gangandi - þar gefst áhugasömum tækifæri til að staldra við, kynna sér verkefnið og fylgjast með uppbyggingu fyrsta vindorkuvers Landsvirkjunar.

Áningarstaður við Sprengisandsleið
Útsýnis- og áningarstaðurinn er sunnan Sprengisandsleiðar, skammt frá framkvæmdasvæði Vaðölduvers. Aðkoma er frá Sprengisandsleið og á kortinu má sjá hvernig staðurinn liggur gagnvart Landvegi, Þjórsárdalsvegi og framkvæmdasvæðinu. Staðurinn er ætlaður gestum sem vilja staldra við, horfa yfir svæðið og kynna sér uppbyggingu vindorkuversins.
Staðsetning með Google Maps hlekk: Smelltu hér
Áningarstaðurinn er í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Deiliskipulag Vaðölduvers, tók gildi 28. maí 2024 og í deiliskipulagsbreytingu er sérstaklega gert ráð fyrir útsýnis- og áningarstað sunnan Sprengisandsleiðar.






