Landsvirkjun hættir við þróun grænnar vetnisframleiðslu að sinni
Landsvirkjun hefur síðustu ár kannað möguleika á að taka þátt í framleiðslu á grænu vetni til innlendra orkuskipta í samstarfi við valda aðila. Nú hefur orkufyrirtæki þjóðarinnar ákveðið að hætta að taka þátt í þróun slíkrar vetnisframleiðslu í bili.
Hugmyndin með verkefninu var að framleiða grænt vetni úr vatni og endurnýjanlegri raforku, með það markmið að auka framboð á vetni sem endurnýjanlegu eldsneyti fyrir orkuskipti í samgöngum og iðnaði. Verkefnið var enn á þróunarstigi og engar ákvarðanir höfðu verið teknar um fjárfestingu í vetnisframleiðslu.
Ástæða þess að við leggjum verkefnið á hilluna er fyrst og fremst sú að áætluð eftirspurn eftir grænu vetni til orkuskipta hérlendis næstu ár nægir að okkar mati ekki til að gera verkefnið arðbært og væntingar um lækkun kostnaðar við vetnistækni hafa ekki gengið eftir. Meðal annars hefur framþróun í rafhlöðutækni síðustu ár dregið úr væntingum Landsvirkjunar um eftirspurn eftir vetni til landsamgangna. Landsvirkjun hefur þó enn trú á því að grænt vetni og rafeldsneyti geti leikið hlutverk í innlendum orkuskiptum til lengri tíma litið og útilokar ekki að skoða verkefnið á ný síðar, ef markaðsaðstæður batna.
Verkefnið hefur verið unnið í samræmi við nýlega stefnu Landsvirkjunar um rafeldsneyti og loftslagstengda viðskiptaþróun, þar sem fram kemur að Landsvirkjun muni skoða möguleika til þátttöku í þróun smærri vetnisverkefna eða sölu á raforku til þeirra.
Þrátt fyrir að við metum þetta verkefni ekki fýsilegt sem stendur mun Landsvirkjun áfram fylgjast með framvindu mála og búa sig undir mögulegan vöxt í vetni og rafeldsneyti ef aukin eftirspurn verður eftir slíku endurnýjanlegu eldsneyti. Landsvirkjun stefnir á að vera áfram í forystu í loftslags- og umhverfismálum og við vinnum áfram markvisst að því að styðja við orkuskipti á Íslandi með fjölbreyttum leiðum - enda er framtíðarsýn okkar sjálfbær heimur, knúinn endurnýjanlegri orku.





