Landsvirkjun hættir við grænt metanól að sinni

30.05.2025Nýsköpun, Viðskipti

Landsvirkjun hættir við grænt metanól að sinni

Sjá stefnu um rafeldsneyti og loftslagstengda viðskiptaþróun

Landsvirkjun hefur frá árinu 2022 kannað möguleikann á framleiðslu á grænu raf-metanóli á Bakka við Húsavík í samstarfi við PCC SE, móðurfélag kísilvers PCC á Bakka. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að leggja verkefnið á hilluna um óákveðinn tíma.

Hugmyndin að verkefninu fólst í framleiðslu á kolefnishlutlausu metanóli með koldíoxíði sem fangað yrði frá kísilverinu og með notkun endurnýjanlegrar raforku frá Landsvirkjun. Markmiðið var að stuðla að orkuskiptum á hafi hérlendis með því að framleiða vistvænt eldsneyti fyrir skip.

Ákvörðunin um að fresta frekari þróun verkefnisins var tekin í desember sl. og byggir á erfiðu viðskiptaumhverfi rafeldsneytisvinnslu og takmarkaðri eftirspurn á markaði, sérstaklega við það verð sem nauðsynlegt væri til að gera verkefnið arðbært. Landsvirkjun hefur þó enn trú á mikilvægi græns rafeldsneytis í orkuskiptum á hafi til lengri tíma litið og útilokar ekki að endurmeta verkefnið síðar, ef markaðsaðstæður batna.

Þessi ákvörðun er í samræmi við nýja stefnu Landsvirkjunar um rafeldsneyti og loftslagstengda viðskiptaþróun, þar sem fram kemur að stærri rafeldsneytisverkefni séu ekki talin samkeppnishæf að svo stöddu en að tækifæri gætu verið á því sviði þegar til lengri tíma er litið.