Landsvirkjun og Norðurál undirrita 7 ára raforkusamning

24.03.2026Fyrirtækið, Viðskipti

Norðurál og Landsvirkjun hafa undirritað samning um raforkukaup álversins á Grundartanga frá ársbyrjun 2027 til ársloka 2033. Keypt magn árlega nemur allt að 250 MW.

Sjö ára raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls í höfn. Frá vinstri, Geir Arnar Marelsson, lögmaður Landsvirkjunar, Hólmfríður Kristjánsdóttir, lögmaður Norðuráls, Ólafur Arinbjörn Sigurðsson, lögmaður Norðuráls, Guðrún Halla Finnsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls á Grundartanga og Landsvirkjunarfólkið Valur Ægisson, forstöðumaður Viðskiptastýringar, Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu, Bjarni Eyfjörð viðskiptastjóri og Unnur Ylfa Magnúsdóttir viðskiptastjóri.

Traust samstarf til 30 ára

Landsvirkjun hefur séð álverinu fyrir raforku frá upphafi, en fyrsti samningurinn var gerður árið 1997 og nam um 100 MW. Í farsælu viðskiptasambandi félaganna hefur magnið aukist jafnt og þétt til að styðja við aukna framleiðslu álversins og virðisaukandi sérvöru. Undanfarin ár hefur raforkusalan numið rúmum 200 MW sem er ríflega þriðjungur af allri orkuþörf álversins. Ef aðstæður í orkukerfi Landsvirkjunar leyfa, þá býður samningurinn upp á viðbótarsölu til álversins, sem gerir Norðuráli kleift að hámarka framleiðslu sína.

Samningurinn er hagfelldur fyrir bæði fyrirtækin og styrkir rekstrargrundvöll álversins á næstu árum.

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls:

Það er fagnaðarefni að Landsvirkjun og Norðurál hafi náð saman um nýjan raforkusamning. Hann tryggir fyrirsjáanleika sem er mikilvægur í okkar rekstri, sérstaklega í ljósi þeirra krefjandi aðstæðna sem uppi eru í orkuöflun hér á landi. Þá er það von okkar að samningurinn styrki enn frekar sterkt viðskiptasamband Norðuráls og Landsvirkjunar.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Það er ánægjulegt að viðskiptasamband Landsvirkjunar og Norðuráls styrkist enn á ný. Fyrirtækin hafa átt samleið í nær þrjá áratugi og á þeim tíma hefur álverið, ein af undirstöðum íslensks útflutnings, vaxið og dafnað. Landsvirkjun hefur stutt álverið í þessari sögulegu þróun. Seinast með auknu magni 2024 með nýjum steypuskála og nú einnig með auknu magni fyrir reksturinn þegar aðstæður í orkubúskapnum hjá okkur leyfa. Við hjá Landsvirkjun hlökkum til áframhaldandi samstarfs.“