A- lánshæfiseinkunn staðfest og grunneinkunn hækkar

26.06.2025Fjármál

Lánshæfiseinkunn staðfest og grunneinkunn hækkar

Lesa meira um lánshæfismat Landsvirkjunar

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar, A- með stöðugum horfum. Um leið hækkaði S&P grunneinkunn (stand-alone credit profile, SACP) Landsvirkjunar úr bb+ í bbb-. Hækkunin byggir á endurmati á rekstraráhættu Landsvirkjunar, sem er nú talin ásættanleg (e. satisfactory) fremur en sæmileg (e. fair), í ljósi hagkvæms orkuvinnslukerfis, sterkrar stöðu á markaði og langtímasamninga við viðskiptavini.

Staðfestingin felur jafnframt í sér traust S&P á því að Landsvirkjun haldi áfram að uppfylla lánshæfismælikvarða samkvæmt núverandi einkunn og hafi burði til að hrinda í framkvæmd umfangsmikilli fjárfestingaáætlun á skilvirkan og hagkvæman hátt, samhliða því að viðhalda traustri lausafjárstöðu.