Lestin brunar, hraðar, hraðar
Lestin brunar, hraðar, hraðar segir í frægu ljóði og lestin er sannarlega farin af stað þegar kemur að þróun raforkumarkaðar á Íslandi.
Fólk hefur mögulega helst tekið eftir raforkumörkuðum vegna frétta um verðhækkanir síðasta vetur. Það þykir síður fréttnæmt þegar framboð er nægilegt og verð lækkar, eins og á þessu ári.
Miklar verðhækkanir eru oftast merki um að raforkuöryggi sé ógnað vegna þess að framboð á markaði er ekki nægilegt. Hugtakið raforkuöryggi kann að vera svolítið óljóst. En það þýðir bara að notendur hafi aðgang að raforku á viðráðanlegu verði.
Landsvirkjun bar lagalega skyldu til 2003 til að tryggja að næg raforka væri til staðar. Það var gert annars vegar með forgangsröðun í raforkusölu, þar sem heimili og fyrirtæki önnur en stórnotendur höfðu forgang og ekki voru gerðar nýjar skuldbindingar við stórnotendur ef það gæti komið niður á afhendingu til almennra notenda. Hins vegar var það gert með því að skerða afhendingu til stórnotenda ef veðurfar og innrennsli í lón var sérstaklega óhagstætt.
Með breytingu á raforkulögum 2003 var þessi skylda Landsvirkjunar afnumin, en eðli raforkukerfisins breyttist þó ekki og raforkuöryggi hefur verið áfram tryggt með sama hætti.





