Skrúfað niður í hitanum á loftslagsumræðunni
Umræða um loftslags- og umhverfismál hefur verið fyrirferðarmikil undanfarin ár. Sú umræða var ekki aðeins leidd áfram af stjórnvöldum eða fræðasamfélagi heldur einnig almenningi. Orð eins og kolefnisspor, náttúruvernd, hringrásarhagkerfi og orkuskipti voru á allra vörum – sem betur fer enda hefur hættan sem mannkyni stafar af hlýnun jarðar aldrei verið meiri. En eitthvað hefur breyst. Segja má að skrúfað hafi verið niður í hitanum á loftslagsumræðunni undanfarin misseri. Á meðan heldur jörðin áfram að hlýna. Í fyrra fór hlýnun jarðar í fyrsta sinn yfir 1,5 gráðu frá iðnbyltingu og sérfræðingar Alþjóða veðurstofunnar vara nú við því að hlýnunin gæti farið yfir 2 gráður á næstu árum – mun fyrr en áður var talið mögulegt.
Í dag virðast heimsmálin öll snúast um annað: stríð, efnahagslega óvissu og tollamúra. Það er eins og athygli mannkyns ráði aðeins við einn vanda í einu – líkt og í kórónuveirufaraldrinum, þegar ekkert annað komst að. Það er þó hættuleg þröngsýni, því loftslagsváin bíður ekki meðan athygli okkar beinist annað um stund.
Þessu til viðbótar hefur gervigreindin numið land með gríðarlegum hraða. Hún leikur stórt hlutverk í almennri umræðu og á sama tíma hafa loftslags- og umhverfismál fengið sæti á varamannabekknum.