Dagurinn hófst á ljúffengum veitingum og svo fór dagskráin af stað. Inga Birna Sigursteinsdóttir, sumarstarfsmaður hjá Mannauði, setti málþingið. Hún kom að skipulagningu þess og stjórnaði dagskránni. Hún þakkaði öllu starfsfólki Landsvirkjunar fyrir frábærar móttökur sumarnema.
Málþing sumarnema 2024
Sumarnemar Landsvirkjunar héldu málþing í Lóninu föstudaginn 9. ágúst, þar sem þeir deildu með starfsfólki hver störf þeirra hefðu verið í sumar og hvað þeir hefðu lært á tíma sínum hjá okkur.
Dagur Óskarsson
Fyrstur með erindi var Dagur Óskarsson, sumarnemi hjá Eignarstýringu. Hann vann í sumar við greiningu á skráðum KKS kóðum í DMM, samanburði á búnaði milli svæða, greiningu á meðalferðatíma innan aflsvæða og endurhönnun á mælikvarðaskýrslum með Power BI.
Agata Rostran Largaespada

Næst á svið var Agata Rostran Largaespada, sumarnemi í Þróun jarðvarma. Í byrjun sumars sótti hún ásamt samstarfsfélögum sínum IGC ráðstefnuna. Hún hélt einnig í tveggja daga ferð norður þar sem hún heimsótti Laxá og fékk að kynnast djúpborunum í Kröflu. Hennar verkefni í sumar fólust meðal annars í gassýnatökum á Mývatnssvæði.
Sóldís Sara Pétursdóttir

Sóldís Sara Pétursdóttir, sumarnemi í Orkusýningunni í Ljósafossstöð, sagði frá sínu sumri í Soginu. Hennar verkefni voru meðal annars að svara heimsóknarbeiðnum og öðrum fyrirspurnum ásamt því að afla sér réttra upplýsinga um sögu raforku og Landsvirkjunar, til að miðla til gesta. Einnig þurfti hún að tryggja að sýningin væri framúrskarandi og skapa hlýlegt andrúmsloft.
Sölvi Karl Stefánsson
Sölvi Karl Stefánsson, sumarnemi hjá Þróun vatnsafls, var í bæði inni- og útivinnu í sumar. Hann vann við flóðagreiningu þriggja vatnsfalla og vinnsluáætlanir á innrennsli í lónin á Þjórsársvæðinu. Í útivinnunni var hann í rennslismælingum á innrennsli við Tungnaár og öðrum viðhaldsverkefnum.
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðukona Loftslags og grænna lausna byrjaði sem sumarnemi hjá Landsvirkjun. Hún hélt stutt erindi þar sem hún talaði um starfsferil sinn og gaf sumarnemum góð ráð út í lífið.
Védís Halla Víðisdóttir

Því næst kom Védís Halla Víðisdóttir, sumarnemi hjá bæði Stefnumótun og Lögfræði, á svið. Í sumar vann hún meðal annars við greiningu Evrópureglugerða, yfirlestur samninga og samningagerð. Einnig vann hún við greiningu úrskurða kærunefndar útboðsmála og sótti tveggja daga námskeið um samningaferli og samningagerð í verktaka- og útboðsrétti.
Brynhildur Sif Viktorsdóttir og Sveinn Ægir Birgisson
Brynhildur Sif Viktorsdóttir og Sveinn Ægir Birgisson störfuðu sem verkstjórar í Soginu í sumar. Þau sáu um að skipuleggja og úthluta verkefnum til sumarstarfsfólksins. Þau höfðu einnig umsjón með svæðinu og héldu utan um tímaskráningu. Þau fjölluðu um verkefnið Margar hendur vinna létt verk sem felst í því að aðstoða fyrirtæki, sveitarfélög eða aðra umsækjendur í alls konar verkefnum. Í ár fóru þau á fjóra staði og sinntu ruslatínslu, landgræðslu, grisjun, girðingarvinnu, slætti og almennri umhirðu garða.
Teitur Hinrichsen

Teitur Hinrichsen, sumarnemi í Rekstri og auðlindum, fékkst við að taka heildarefnasýni af öllum gufuöflunarholum Landsvirkjunar, sem og úr vinnslukerfum jarðvarmavirkjana. Einnig tók hann þátt í að mæla afl gufuöflunarhola ásamt því að sinna fjölbreyttum verkefnum sem sneru að tilraunastarfsemi á jarðhitasvæðum.
Bryndís Brynjúlfsdóttir

Bryndís Brynjúlfsdóttir, sumarnemi hjá Samskiptum og upplýsingarmiðlun, var síðust á svið. Hún var aðallega í verkefnum tengdum samfélagsmiðlum Landsvirkjunar í sumar, þá bæði framleiðslu og miðlun þess efnis. Einnig aðstoðaði hún við skipulagningu viðburða, vann við ytri vef og aðstoðaði við rekstur gestastofa Landsvirkjunar.
Harpa Víðisdóttir mannauðsstjóri átti svo lokaorðin og þakkaði sumarnemum fyrir frábært sumar.
Þau sem komu fram á málþinginu voru sammála um mikilvægi þess að vera sýnt traust sem nýliði í flóknu starfi. Þau sögðust hafa fengið tækifæri til að prófa sig áfram, fengið aðstoð og stuðning eftir þörfum og haft svigrúm til að gera mistök og læra af þeim.




