Hvert gætum við flutt?
Landsvirkjun hyggst kanna möguleikann á að færa höfuðstöðvar sínar. Við óskum eftir upplýsingum um lóðir, um laust húsnæði eða hvaða tækifæri bjóðast til samstarfs við lóðarhafa.
Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar og vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli, jarðvarma og vindi. Höfuðstöðvar okkar eru að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík og hýsa um 180 starfsmenn.
Ef af flutningum verður þurfa nýjar höfuðstöðvar að vera um 5-6 þúsund fermetrar á 2-4 hæðum og geta mætt breytilegum þörfum okkar til lengri og skemmri tíma. Nú óskum við eftir að komast í samband við öfluga og trausta fagaðila sem eiga lóðir eða húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og gætu mætt húsnæðisþörfum okkar.
Allar nánari upplýsingar er að finna á landsvirkjun.is/hus.
Áhugasöm eru beðin að svara fyrir 28. apríl.





