Meira afl fyrir orkuna
Líkur eru á að raforkuþörf samfélagsins verði ekki uppfyllt á allra næstu árum. Þetta eru ekki ný sannindi, þau hafa endurspeglast í umræðum um orkuöryggi og í spám Orkustofnunar og Landsnets. Illa hefur gengið að koma verkefnum tengdum aukinni raforkuvinnslu í gegnum flókið leyfisveitinga- og kæruferli en nú hillir loks undir breytingar. Framkvæmdir við byggingu Vaðölduvers eru í fullum gangi og bygging Hvammsvirkjunar kemst vonandi á fullan skrið á allra næstu mánuðum.
Það gleymist hins vegar stundum að ekki er nóg að afla orku inn í raforkukerfið heldur þarf einnig að setja upp nægilegt stýranlegt afl til að mæta þörf fyrir sveigjanleika. Næg orka er eitt, nægt afl annað. Ég hef áður líkt þessu við rútu sem ekur eftir þjóðveginum. Hún er með nægilegt bensín, þ.e. orku, en ekki nægilega öfluga vél til að komast upp allar brekkur. Aflið skortir til að nýta orkuna. Ítrekað hefur reynt á aflgetu raforkukerfisins undanfarin ár. Raforkuspár Landsnets benda einnig til að aflskortur geti orðið viðvarandi í raforkukerfinu í nánustu framtíð enda fer þörf fyrir sveigjanleika vaxandi vegna m.a. orkuskipta og innkomu vindorkuvera. Rekstur vindorkuvera kallar á stýranlegt afl á móti vindorkunni til að tryggja afhendingu orku frá slíkum orkuverum.





