Notum þau verkfæri sem nýtast okkur best
Oft hafa verið hafðar uppi heitstrengingar um að einfalda verði regluverk hér á landi enda líði atvinnulífið og þar með samfélagið allt fyrir flókið kerfi sem á stundum geti virkað sem spennitreyja á umsvif og framfarir. Núverandi stjórnvöld hafa vissulega brett upp ermar og við hjá Landsvirkjun höfum mikla trú á að árangur sé í sjónmáli.
Það skýtur því óneitanlega skökku við að á sama tíma skuli vera ætlunin að innleiða evrópskar reglur frá 2018 sem Evrópusambandið sjálft hefur þegar áttað sig á að gengu ekki nægilega langt. Reglur, sem óbreyttar geta dregið úr samkeppnishæfni okkar á alþjóðamarkaði.





