Landsvirkjun með tvo fulltrúa
Markmið KÍO er að efla þátt kvenna í orkumálum, styrkja tengsl þeirra og auka áhrif þeirra innan greinarinnar. Félagið var stofnað fyrir tíu árum og hefur vaxið hratt á síðustu misserum, undir dyggri stjórn fráfarandi formanns, Selmu Svavarsdóttur, forstöðumanns umbóta og öryggis hjá Landsvirkjun.
Um 300 nýir félagar hafa bæst við á síðustu tveimur árum og eru félagar nú orðnir rúmlega 900 talsins.
Rósa Jakobsdóttir, forstöðumaður verkefnastoðar Landsvirkjunar, og Unnur Ylfa Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Landsvirkjun, tóku sæti í nýju stjórninni.
Valdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri auðlinda hjá HS Orku, var kjörin formaður félagsins og nýja stjórn skipa:
- Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi hjá Samorku.
- Hrefna Björg Gylfadóttir, verkefnastjóri innleiðingar stefnu hjá Veitum.
- Ragnhildur Thorlacius, lögfræðingur hjá Orkuveitunni.
- Rósa Jakobsdóttir, forstöðumaður verkefnastoðar hjá Landsvirkjun.
- Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Orkusölunni.
- Sigurborg Rútsdóttir, verkefnastjóri hjá Rarik.
- Stefanía Sif Stefánsdóttir, sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis hjá Landsneti.
- Unnur Ylfa Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Landsvirkjun.
- Valgerður B. Eggertsdóttir, leiðtogi hagaðilatengsla og sjálfbærni hjá Orku náttúrunnar.





