Ný stjórnstöð Landsvirkjunar
Ný stjórnstöð Landsvirkjunar hefur verið tekin formlega í notkun. Stjórnstöðin vaktar öll mannvirki og búnað Landsvirkjunar og stýrir aflstöðvum fyrirtækisins. Stjórnstöðin er í höfuðstöðvum Landsvirkjunar í Katrínartúni í Reykjavík og varastjórnstöð er við Írafoss.
Vöktun og stýring aflstöðva Landsvirkjunar var um árabil í höndum Landsnets en það fyrirkomulag sætti eðlilega gagnrýni hin síðari ár í ljósi samkeppni á raforkumarkaði. Fyrir um þremur árum ákvað Landsvirkjun að byggja upp eigin stjórnstöð frá grunni, en það var bæði flókið og umfangsmikið verkefni. Nú er uppsetningu alls búnaðar lokið, starfsfólk hefur fengið fullnægjandi þjálfun og nokkurra vikna reynsla er komin á rekstur stjórnstöðvarinnar.





