Nýtum styrkleika okkar á öld raforkunnar
Óvissa í heimsmálunum er meiri í dag en oft áður. Umgjörð alþjóðaviðskipta hefur breyst hratt og áherslur ríkja færst í átt að verndarstefnu, tollum og niðurgreiðslum til að styrkja eigin samkeppnishæfni. Fyrir útflutningsdrifið hagkerfi eins og hið íslenska er þessi þróun krefjandi, því við reiðum okkur á opið aðgengi að mörkuðum og sanngjarna samkeppni. Ýmsar stuðningsaðgerðir erlendis geta verið ósanngjarnar gagnvart lítilli þjóð, en Ísland hvorki getur né þarf að fara þá leið að niðurgreiða starfsemi stórnotenda. Okkar styrkur verður að liggja annars staðar.
Í mörgum Evrópuríkjum hefur iðnaður dregist mjög saman, sem birtist hvað skýrast í Þýskalandi þar sem framleiðsla orkusækins iðnaðar hefur dregist saman um 18% frá árinu 2021. Orsökin er meðal annars hátt og sveiflukennt orkuverð og skortur á fyrirsjáanleika. Evrópa leitar nú lausna og horfir meðal annars til langtímasamninga um raforku – leið sem við Íslendingar þekkjum vel og hefur veitt bæði iðnaði og orkufyrirtækjum nauðsynlegan stöðugleika.
Iðnaður á Íslandi og í Noregi stendur að mörgu leyti sterkar en víða annars staðar. Hér hafa stórnotendur nýtt langtímasamninga til að vaxa og hafa lagt áherslu á verðmætari framleiðslu. Góður mælikvarði á samkeppnishæfni er einmitt staða iðnaðar – hann stendur sterkur þegar orkufyrirtæki og iðnaður ná að vaxa hönd í hönd.





