Ógnir núna ekkert á við áhættu framtíðar
Við lifum tíma aukinnar óvissu í alþjóðamálum. Birtingarmyndirnar eru ýmsar, svo sem vopnuð átök milli ríkja, tollastríð sem skekja efnahagslíf heimsins, aukin samfélagsskautun og bakslag í mannréttindamálum. Þessi óheillaþróun og sú óvissa sem henni fylgir breytir eðlilega forgangsröðun ríkja, fyrirtækja og einstaklinga og hefur áhrif á daglegt líf okkar allra. Þegar við bregðumst við því sem brennur heitast á okkur hverju sinni verðum við þó jafnframt að gæta þess að missa ekki sjónar á heildarmyndinni.
Í nýlegu áhættuyfirliti World Economic Forum (Global Risk Report 2026) má sjá að stærstu áhætturnar til skemmri tíma (þ.e. næstu 2 árin) tengjast einkum efnahagslegum og vopnuðum átökum ríkja, samfélagsskautun, upplýsingaóreiðu og spennu milli ríkja með tilheyrandi áhrifum á markaði, tækniþróun, virðiskeðjur og lagaumgjörð. Á meðan hafa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir er varðar náttúru og ósjálfbæra nýtingu hennar ekki lagast. Við, mannfólkið, höfum á síðustu 150 árum valdið stórfelldum breytingum á loftslagi með bruna jarðefnaeldsneytis, eytt vistkerfum, útrýmt dýrategundum og nýtt takmarkaðar auðlindir jarðar með óendurnýjanlegum hætti. Þetta hefur komið skýrt fram í hverri vísindaskýrslunni á eftir annarri og nú síðast í stöðuskýrslunni „State of the Global Climate 2025“ sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin gaf út í vikunni. Þegar horft er lengra fram á veginn (þó ekki nema til næstu 10 ára) stendur mest ógn af áhættum sem tengjast umhverfi, loftslagi og náttúru – þessar ógnir eru nú þegar raunverulegar og undirliggjandi þáttur í þeirri óvissu sem ríkir til skamms tíma.
Með öðrum orðum: skammtímaóvissan er raunveruleg og brýn, en langtímaáskoranirnar hverfa ekki - þær bíða ekki á meðan við sinnum öðru.





