Öll leyfi fyrir Hvammsvirkjun í höfn

19.03.2026Hvammsvirkjun

Mikilvægum áfanga hefur nú verið náð í undirbúningi framkvæmda við Hvammsvirkjun. Öll lykilleyfi vegna framkvæmdarinnar hafa annað hvort verið gefin út eða fyrir liggur formleg heimild til útgáfu þeirra.

Tölvugerð mynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði
Tölvugerð mynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði

Lykilleyfi fyrir framkvæmdinni liggja fyrir

Verkefnavefur Hvammsvirkjunar

Mikilvægum áfanga hefur nú verið náð í undirbúningi framkvæmda við Hvammsvirkjun. Öll lykilleyfi vegna framkvæmdarinnar hafa annað hvort verið gefin út eða fyrir liggur formleg heimild til útgáfu þeirra. Þar með getur Landsvirkjun haldið áfram með verkefnið af fullum krafti.

Umhverfis- og orkustofnun gaf út endurnýjað virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun 12. desember 2025. Með leyfinu var Landsvirkjun veitt heimild til að reisa og reka virkjunina í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi, ásamt heimild til breytinga á viðkomandi vatnshlotum.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti útgáfu framkvæmdaleyfis vegna Hvammsvirkjunar á fundi sínum 25. febrúar 2026. Leyfið tekur til þeirra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra.

Þá liggur einnig fyrir ákvörðun um útgáfu framkvæmdaleyfis Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna þeirra þátta Hvammsvirkjunar sem eru innan marka sveitarfélagsins. Ákvörðunin var tekin 18. mars 2026 og líkt og framkvæmdaleyfið í Rangárþingi ytra, nær það til framkvæmda Landsvirkjunar sem ekki eru háðar byggingarleyfi.

Þann 4. mars 2026 samþykkti byggingarfulltrúi Rangárþings ytra byggingaráform fyrir fyrsta áfanga stöðvarhúss, flóðgáttir, hluta stíflumannvirkis og inntaks- og fiskvegsmannvirki. Byggingarleyfi fyrir þessum framkvæmdum voru síðan gefin út formlega 16. mars 2026.

Tölvugerð mynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði

Jarðvegsframkvæmdir og útboð fram undan

Sjá útboðssíðu Landsvirkjunar

Fram undan eru jarðvegsframkvæmdir í landi Hvamms í Rangárþingi ytra, þar sem grafið verður fyrir helstu steyptu mannvirkjum virkjunarinnar. Verkið var boðið út í desember 2025 og bárust alls sex tilboð í verkið, gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næstu dögum. Samhliða því er áfram unnið að uppsetningu vinnubúða og annarra nauðsynlegra innviða á svæðinu.

Þá hefur þegar verið lokið við vinnslu efnis til vegagerðar úr efsta hluta frárennslisskurðar, gerð aðkomuvegar að virkjuninni og að leggja til hliðar efni sem nýtt verður í vegaframkvæmdum Vegagerðarinnar við Búðafossveg og nýja brú yfir Þjórsá.

Stefnt er að útboði allra verkþátta við Hvammsvirkjun á árinu 2026 og er gangsetning áformuð árið 2030.