Norðurland býr enn yfir miklum tækifærum til bættrar nýtingar auðlinda og frekari atvinnusköpunar hvort sem er á grunni jarðhita og raforku, eða hliðarafurða frá landbúnaði, sjávarútvegi eða öðrum iðnaði. Dæmin sanna að nýsköpun og frumkvöðlastarf lifir þar góðu lífi. TDK Foil á Akureyri framleiðir álþynnur sem nýttar eru í snjallsímana okkar og önnur rafeindatæki, Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki steinull í ýmsum formum til að einangra hús og híbýli, Sæplast á Dalvík plastker sem notuð eru í matvælaiðnaði beggja vegna Atlantshafsins og Vilko á Blönduósi þurrkar og vinnur matvæli í ýmsum myndum sem allir landsmenn þekkja. Vart þarf að minna á öflug fyrirtæki í sjávarútvegi og landbúnaði.
Á starfstíma Eims hefur mikil breyting orðið á orkutengdri starfsemi á Norðurlandi. Þrír stórnotendur hösluðu sér þar völl, kísilmálmverksmiðjan PCC BakkiSilicon og gagnaversfyrirtækin AtNorth og Borealis Data Center. Mikil fjárfesting hefur fylgt þessum aðilum og þau hafa verið mikilvæg stoð í atvinnulífi svæðisins. Þessi fjárfesting er afrakstur nýtingar endurnýjanlegra orkugjafa á Norðurlandi.
Þótt margt hafi hér verið talið upp er upptalningin ekki tæmandi. Hér hafa aðeins verið nefnd nokkur dæmi um afrakstur þeirrar bjartsýni og drifkrafts sem ríkt hefur í orkutengdri atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi. Landsvirkjun ætlar að leggja sitt af mörkum áfram til að styðja við slíka uppbyggingu og við hlökkum til þeirrar framtíðar.
____
Greinin birtist fyrst í Bændablaðinu 16. apríl 2026