Orkuskipti fyrir betri heim
Orkuskiptin gegna lykilhlutverki við að uppfylla skuldbindingar okkar Íslendinga um samdrátt í losun. Stjórnvöld þurfa að halda vel á spilum á næstu árum svo hægt verði að afla nægilegrar orku til orkuskipta og draga um leið úr losun.
Hinn 12. desember sl. voru slétt 9 ár frá því að Parísarsamkomulagið var undirritað af þjóðum heims sem sammæltust þar með um að stefna að því að halda hlýnun jarðar innan 1,5°C frá iðnbyltingu.
Allar þjóðir heims þurfa að leggja sitt af mörkum svo halda megi hlýnun jarðar innan þeirra marka og koma þannig í veg fyrir kostnaðarsamar og óafturkræfar afleiðingar loftslagsbreytinga. Þar skiptir samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda mestu máli. Samdrátturinn má þó ekki koma niður á öðrum umhverfisþáttum, svo sem líffræðilegri fjölbreytni.





